31 janúar 2008

WHY MEN ARE NEVER DEPRESSED:

Men Are Just Happier People-- Your last name stays put. The garage is all yours. Wedding plans take care of themselves. Chocolate is just another snack. You can never be pregnant. Car mechanics tell you the truth. The world is your urinal. You never have to drive to another petrol station restroom because this one is just too icky. You don't have to stop and think of which way to turn a nut on a bolt. Same work, more pay. Wrinkles add character. People never stare at your chest when you're talking to them. New shoes don't cut, blister, or mangle your feet. One mood all the time.Phone conversations are over in 30 seconds flat. You know stuff about tanks and engines. A five-day vacation requires only one suitcase. You can open all your own jars. You get extra credit for the slightest act of thoughtfulness. Your underwear is £8.95 for a three-pack. Three pairs of shoes are more than enough. You never have strap problems in public. You are unable to see wrinkles in your clothes. Everything on your face stays its original colour. The same hairstyle lasts for years, maybe decades. You only have to shave your face and neck. You can play with toys all your life. One wallet and one pair of shoes -- one colour for all seasons. You can wear shorts no matter how your legs look. You can "do" your nails with a pocket knife. You have freedom of choice concerning growing a mustache. You can do Christmas shopping for 25 relatives on December 24 in 25 minutes. No wonder men are happier.

29 janúar 2008

You are beautifull

Það er svo gaman að vera til þegar það er nóg að gera í vinnunni. Alveg jafn gaman og það er leiðinlegt þegar það er lítið að gera í vinnunni. Slóvakarnir komu í dag. Ég var náttlega í móttökunefndinni ásamt sjálfri mér og mér sjálfri. Ég veit fátt meira gefandi vinnulega en þetta - að taka á móti hópi af fólki og láta því líða vel og finnast það velkomið, svara spurningum þess og leysa úr vandamálum sem upp koma. Mér finnst þetta æði. Skemmtilegra og mikið meira gefandi en að bulla í moldvörpunum, þó svo það sé ofsalega gaman að bulla í moldvörpunum.

~~~

Ósk er rosalega góð í reikningi. Hún er útsjónasöm og sniðug.

27 janúar 2008

Allt er breytingum háð ...


... og allt breytist nema aðdáun mín á fegurð Clives. Ég missi andann þegar ég horfi á hann.

Meira að segja Sveinsína breytist. Hún var orðin eitthvað rykfallin greyið og þurfti aðeins að hressa sig við svo við fórum í búðir og keyftum nýtt "out-fit".

25 janúar 2008

Snjókoma

Ég var fegin að geta notfært mér almenningsvagna höfuðborgarsvæðisins í gærmorgun - ég hefði ekki komist í vinnuna á mínum bíl. Reyndar var umferðin svo þung að vagninn var 40 mínútum á eftir áætlun og mér var orðið frekar kalt á lærunum eftir biðina í skýlinu þegar ég mætti loks í vinnuna. En það er hlýtt og notalegt í Actavis og ég fékk heitt kaffi og nýbökuð rúmstykki með osti og sultu til að hlýgja mér í kroppnum.

~~~

Ég fékk nýtt símtæki í vinnunni á miðvikudaginn - ofsalega fallegt. Ég fékk að sjálfsögðu nýtt númer líka - framakonan ég! Svo nú er ég öfgasmart með nýja símtækið mitt fallega í pilsi og leðurstígvélum.

~~~

Þessi fallegi hundur á myndinn er hann Húni. Hann er orðinn ósköp gamall þessi elska, 7 ára. Ég veit að það telst ekki nema miðaldra af hundi að vera en hann er kominn með beinmyndun í mjaðmaliði og axlaliði svo hann verður haltur og aumur ef hann er mikið í löngum göngum eða á flakki upp og niður stigann. En hann er dásamlegur hluti af fjölskyldunni og vinsælt myndefni hjá Steini Vigni systursyni mínum. Steinn er mikill ljósmyndaáhugamaður og mjög hæfleikaríkur á því sviði. Ef þið hafið áhuga má sjá myndirnar hans hér. Við unnum myndaseríu saman í upphafi árs sem má sjá á stofuveggnum hér heima hjá mér - mjög skemmtilegar myndir af fjölskyldumeðlimum.

23 janúar 2008

Time is running out

Ég heiti Aðalheiður og ég er meðvirkill. Ég veit ekki hvort er verra, að vera fíkill eða meðvirkill. Sem meðvirkill á ég til dæmis erfitt með að gera mér grein fyrir því hvernig mér líður, ég á erfitt með að taka ákvarðanir, ég dæmi allt sem ég hugsa, segi og geri harðlega og finnst það aldrei nógu gott, ég tek álit annarra á hugsunum mínum, tilfinningum og hegðun fram yfir mitt eigið og ég er næm fyrir því hvernig öðrum líður og mér líður eins og þeim.

Eins og núna. Ég skrapp í moldvörpugrenið áðan að ná í nýja símtækið mitt. Ég stoppaði að sjálfsögðu til að spjalla við strákana. Eitthvað lá illa á einum þeirra og ég dró það í mig eins og þurr svampur drekkur í sig vatn. Mér fannst eins og ég ætti að reyna að hressa hann við, láta honum líða betur, vera bjargvætturinn. Ég var sem betur fer meðvituð um að það er ekki í mínum verkahring og reyndi að hemja mig. Eins stóð ég með sjálfri mér og leyfði honum ekki að taka eigin vanlíðan út á mér. Samt líður mér ömurlega þar sem ég sit hér og hugsa um þetta. Þar kemur meðvirknin til skjalanna - aftur.

Núna líður mér illa. Mér finnst ég ætti að hafa gert eitthvað til að láta honum líða betur. Ég nöldra í sjálfri mér fyrir að hafa ekki gert nóg. Ég skammast í mér fyrir að hafa gert of mikið. Ég ríf mig niður fyrir að nöldra í mér fyrir að finnast ég ekki hafa gert nóg og ég dæmi mig miskunnarlaust fyrir að skammast í mér fyrir að finnast ég hafa gert of mikið. Ég læt aðra manneskju stjórna því hvernig mér líður og ég get sko skammað mig fyrir það.

Fyrr má nú rota en dauðrota!

16 janúar 2008

Ekki á morgun heldur hinn

Jæja stelpur, þá er þetta að fara gerast.......bara ekki á morgun heldur hinn. Á föstudagskvöldi verður boðið upp á kjúklingapastasalat og laugardagskvöldi Fahijtas. Við skiptum svo kostnaðinum á okkur. Alla ætlar að græja föstudagsmatinn og við Jana ætlum að græja laugardagsmatinn. Drykki græjar að venju hver fyrir sig. Minni bara á lesninguna hér fyrir neðan með farangur og leiki og fleira.

Hlakka til að sjá ykkur,
kveðja, Ósk

14 janúar 2008

Jólakíló

Mér til mikillar sorgar (en ekki furðu) fékk ég 3 kg af fitu í jólagjöf. Ég ætla samt ekki að þiggja þau - ég vona að gefandi móðgist ekki við það að ég skili þeim í búðina!

Ég keypti mér jógadýnu um daginn. Rándýrt fyrirbæri svo ég verð að leggja hart að mér að nota dýnuna í nokkur skipti í það minnsta - svona uppí kostað alla vega. Þess vegna fór ég til OlluMögggu móðu minnar á föstudag og fékk lánaðan mynddisk þar sem Guðjón Bergmann leiðir áhorfandann í gegnum einfaldar (og flóknari) jógaæfingar.

Ég er búin að spila diskinn tvisvar. Samkvæmt fyrirmælum horfði ég bara í fyrsta skiptið en gerði æfingarnar með í annað skiptið. Ég verð búin að vinna fyrir dýnunni ef ég geri þrisvar sinnum í viðbót í janúar. Fylgist með ...

10 janúar 2008

Sumarbústaður eftir átta daga!!!!

Niðurtalning er hafin fyrir sumarbústaðafjörið 2008 hjá Sveinsínum. Föstudaginn 18. janúar ætlum við að skunda (eða kannski keyra) í bústaðinn góða á Flúðum og gista fram til 20. janúar.
Ferðin mun að þessu sinni hafa spænskt þema og eru allir beðnir um að mæta með fatnað sem hæfir þemanu og með spænska tónlist (það sem fólk á). Hugmynd er um sameiginlegan málsverð á laugardagskvöldinu t.d. Fahijtas.

Allir að mæta með sínar drykkjarveigar, sængurföt, sundföt, mat fyrir utan sameiginlega máltíð, það sem fólk á skemmtilegt og vill hafa með, góða skapið og gleðina og stuðið.

Frábær hugmynd kom um að hafa pakkaleik. Allar sem vilja taka þátt mæti með pakka sem inniheldur eitthvað og miða skal við 1000 krónur í kostnað. Síðan verður svona pakkarugl og allir fá einn pakka.........

Dagskrá:

Föstudagskvöld:
Bollalestur
Heitur pottur?

Laugardagur:
Sameiginlegur matur
Pakkaleikur
Heitur pottur?

Nú er bara að allar staðfesti þátttöku / mætingu og eins láti vita hvort þær vilji taka þátt í sameiginlegum mat á laugardagskvöldi - Fahijtas. Sjáumst, sjáumst, sjáumst, sjáumst, sjáumst, sjáumst mjög fljótlega............ohhhhh þetta verður æði stelpur!

Kveðja Ósk!

09 janúar 2008

Sunnudagskaffi


Sælar Sínur

Mig langar til að bjóða ykkur í smá sunnudagskaffi þann 13. janúar upp úr kl 15. Í boði verða kaka og köld mjólk. Til þess að kakan verði nú örugglega nógu stór vinsamlegast staðfestið komu ykkar hér í "comments" fyrir sunnudag.

Töffari

Ég á mjög erfitt með að halda vatni yfir þessum manni um þessar mundir.
Johnny Depp hefur slegið Jude Law úr toppsætinu. Depp er bara alltaf svo viðbjóðslega töff eitthvað.

08 janúar 2008

Gleðilegt nýtt ár Sveinsínur

Ég óska ykkur öllum kæru vinkonur, gleðilegs árs og hlakka til að hitta ykkur sem oftast á árinu 2008.
Finnst við hæfi að tileinka ykkur þetta lag, Girl You Know Its True.