31 ágúst 2009

Hönk vikunnar

*andvarp*

Alexander er æði. Pabbi hans er líka æði, kannski ekki sem hönk, en sem leikstjóri og leikari. Alexander er æði á alla kannta, sexý, kyssulegur, hugsandi, sexý, hávaxinn, hæfileikaríkur, sexý, ekki skemmir fyrir að hann er sænskur og já, sexý! Þið skiljið þetta þegar þið horfið á True blood ...

Ég var á hárgreiðslustofunni þegar ég sá þetta myndband fyrst, við Þórir vældum fyrir þessu ... mjááá. Lady Gaga er ógeðslega töff.

Lady Gaga - Paparazzi (Official Music Video)


Fyrir nokkrum misserum átti hinn ágæti maður Johan Renck lag vikunnar og gott ef hann var ekki líka hönk vikunnar. Hver getur fundið tenginguna á milli Johans og þessa myndbands með Lady Gaga?

Shared via AddThis

6 ummæli:

Gugga sagði...

Hver er Alexander?? Af hverju er engin mynd af hönki vikunnar?

Alla sagði...

Horfðu á myndbandið!

Gugga sagði...

Nú skil ég....það er sko nebblilega lokað á MySpace, Facebook og MSN í vinnunni hjá mér. Þ.a.l. sá ég ekki rassgat í bala.

Nafnlaus sagði...

nammi namm...smá öfund út í ladygaga. Hann er virkilega kynþokkafullur maðurinn.
Ingveldur

Nafnlaus sagði...

Er ekki Britney nýbúin að vera með eitthvað svona lag um öfgana í myndatökum í lífi stórstjarna?

Hönkið er hönk!!

...Ósk

Alla sagði...

Jú, Britney nýbúin.
Þetta lag aftur á móti fjallar um stelpu sem vill vera paparazzo eins stráks, hún er ógislega skotin í selebritýi og ætlar að elta hann á röndum og taka af honum myndir og eitthvað þartil hann elskar hana. Hlutverkunum er bara snúið við í myndbandinu, þar er Hönkið í raun paparazzinn. Skiljú?