31 ágúst 2006

Úbbosí...smá vesen

Hæ stelpur nú er komið babb í bátinn. Inga er á leiðinni á fjöll og kemst ekki og það er búið að boða okkur Kristjönu á fyrstu kóræfingu með hinum spánnýja kór Con Spirito (áhugasömum bent á að sækjast eftir inngöngu).

Nú er bara spurningin stóra, eru Aðalheiður, Halla, Ósk og Kristín Birna einnig á lausu miðvikudagskvöldið 6. september? Ef svo er þá væri það alveg frábært að geta fært kvöldverðarboðið fram um einn dag....þá hittumst við líka fyrr :)

Hvað segið þið?

8 ummæli:

Tilvera okkar.... sagði...

Ég kemur!!

Nafnlaus sagði...

oh, ég er sko til í að færa þetta!

Nafnlaus sagði...

:) til

Nafnlaus sagði...

Ég veit ekki betur en að ég sé á lausu það kvöld. So it works for me.

Nafnlaus sagði...

Sama hjá mér, kallinn á dagvakt og ég ætti því að vera laus....Læt það bara ganga:)

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ, takk fyrir síðast!!!
Mig langar til að reyna að mæta á miðvikudaginn, fæ að meira að vita í kvöld hvort ég kemst.
Kv. Bríet.

Nafnlaus sagði...

Þetta voru kannski óþarfa skrif hjá mér síðast, ég kemst ekki að hitta ykkur á miðvikudaginn:(

Mitt atkvæði við þrítugsafmælisferðinni er bara JÁ við það sem flestar vilja:)

Kveðja, Bríet.

Nafnlaus sagði...

Ég kemst náttúrulega ekki, nenni ekki að ferðast með litlu skvísu strax að óþörfu. Gerið samt ráð fyrir mér í ferðina - mér líst best á haustferð. Endilega skrifið hér hvað fer fram á "fundinum".
Kveðja,
Margrét Harpa