10 nóvember 2005

Partýtröllið Aðalheiður

Rak augun í þetta hjá Gurrý og datt í hug að prófa ...


Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.


Hvaða tröll ert þú?

3 ummæli:

Gugga sagði...

Ég er sama tröll og þú.

veldurvandræðum sagði...

Ég er líka það sama, enda á ég ipod, pólóbol (þó ekki Fred perry) og adidas skó. Og ég horfi alltaf á OC þó mér finnist það kannski ekkert svakalega skemmtilegt....svo er ég líka viðkvæmt blóm.

Sveinsína sagði...

Ég var að fá í hendurnar seríu tvö af TheOC í heild sinni (þessa sem er verið að sýna) og hugsa mér gott til glóðarinnar um helgina :)