Karl og kerling í sínu koti
kúrðu‘ og áttu einn svein, hann Hrein,
beljuhró geymt í fjósabroti,
Búkollu‘, og hún bjó ein.

Svo einn daginn var horfin kusa
og ekkert til hennar sést, né frést.
Þá var Hreinn sendur út að hnusa,
harður og til í flest.
Deó deó deó déo.
„Baulaðu búkolla ef þú heyrir!“
Deó deó deó deó.
En ekkert heyrðist, hann áfram lengra hélt.
Þegar hann hafði gengið lengi
með hælsæri kominn var og mar.
Aumar iljar og sára strengi
og stóð varla‘ í lappirnar.
Ef hann findi‘ ekki kusu‘ í hvelli
og kæmi óðara þeim strax heim
fengi‘ hann ráðningu og rassskelli
og rekinn burt frá þeim.
Deó Deó deó deó.
„Baulaðu Búkolla ef þú heyrir!"
Deó deó deó deó
„Baulaðu strax ef þú heyrir boffs í mér!“

Þá er baulað úr háu bjargi
þar Búkolla‘ er bundin við grót með fót.
litlu innar á loðnu fargi
liggur skessa ein ljót.
Strákur kemst síðan út með belju
og stikar í áttina heim, beint heim
en skessan vaknar og sýpur hveljur:
„Svei! Ég skal ná þeim tveim!
Hæ hó korríró,
ég skal ná ykkur skrattakollar!
Hæ hó korríró
það þýðir ekkert að sitja‘ og drolla.“
Þegar skessan var alveg að ná þeim sagði strákur: „Hvað eigum við að gera?“ Og þá sagði Búkolla: „Muuu, taktu hár úr hala mínum og legðu það á jörðina, verður það þá að svo stóru vatni að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi!“ Gerði strákur þetta og varð út þetta líka ekki smá vatn. Nú varð skessan alveg æf, hljóp heim í hellinn og kom með stóra bolann hans pabba síns og hann drakk allt vatnið í einum sopa. Nú var skessan alveg að ná þeim aftur, þá segir Búkolla: „Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina. Verður það þá að svo stór báli að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.“ Hlær þá skessan og lætur bolaótuktina pissa öllu vatninu sem hún drakk á bálið og slökkva í því. Þegar skessan var alveg að ná þeim einu sinni enn segir Búkolla: „Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina. Verður það þá að svo stóru fjalli að enginn kemst yfir nema fulginn fljúgandi.“ Stoppar þá strákur og segir: „Ég er nú búinn að fá mig fullsaddan af þesssu kjaftæði í þér beljuskratti þarna. Taktu hár úr hala mína hvað ha? Þetta hefur ekkert virkað hjá þér hingað til. Nú tek ég til minna ráða.“ Skipti engum togum að stráksi hreinsaði hárin af halanum á Búkollu og stráði þeim í kringum sig. Spruttu þá upp heilu fjallasalirnir. Síðan hefur ekkert spurst til þeirra.
Deó deó deó deó
deó deó deó deó
deó deó deó deó.
3 ummæli:
Mér þótti alveg magnað að sjá hvað textahöfundur er fær í sínu fagi - allt stuðlað! Þetta er næstum eins og að Þórarinn Eldjárn hafi samið textann :)
Og eftir hvern er textinn? Ladda?
Kv. Halla
Já það var gæðatónlist í græjunum. Stuðluð og allt....
Skrifa ummæli