07 október 2009

Bústaður

Já sælar verið þið og takk fyrir síðast.

Nú fer fram kosning um hentuga helgi.

15.-17. janúar
22.-24. janúar
29.-31. janúaar

Staður Heiðarbyggð á Flúðum.
Verð: 14.800.

Koma svo!!!

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér líst ótrúlega vel á fyrstu helgina, 15.-17. janúar, þá eru engin þorrablót, líklega engar árshátíðir o.s.frv. Annars er ég laus hinar helgarnar líka svo best sem ég veit.

Kveðja,
Margrét Harpa

Alla sagði...

Góður punktur hjá Margréti, fyrsta helgin er fyrir þorrablót svo hún fær mitt atkvæði ... annars er ég ekki farin að taka niður bókanir í janúar svo ég er opin f.öllu.

Nafnlaus sagði...

Ég bara get ekki svarað í augnablikinu. Það horfir á breytingar á vaktakerfinu í vinnunni svo ég veit ekki hvaða helgi ég verð á í janúar. En læt vita strax og ég kemst að því.

Hvar ert þú annars Jana, bara föst í rúminu með kærastanum eins og aðrar stelpur sem ná sér í kærasta og dissa vinkonurnar??? ......djók....þú sagðist ætla að koma í gærkvöldi en komst svo ekki, ert ekki inn á MSN og svaraðir ekki símanum á áðan. Vonandi allt í lagi. :)

Kveðja Ingveldur

Nafnlaus sagði...

Obb, bobb, bobb...!!! Ég dissa ekki vinkonur mínar, ekki nema það sé óvart sko ;)

Ég var að flytja í kvöld, og sá ekki á símanum að þú hafðir hringt fyrr en eftir klukkan ellefu, þá kunni ég ekki við að hringja í þig....ég er bara pínu Viggó viðutan þessa dagana. Ég ætla að hringja og biðjast afsökunar á morgun ;(

kv. Janus.

ps. Það liggur svo sem ekkert geðveikt mikið á að bóka bústaðinn en samt skulum við reyna að gera það einhvern tíma í Október.

kv. Jana

Gugga sagði...

Líst vel á þessa fyrstu. Hún fær mitt atkvæði.

Nafnlaus sagði...

Ennþá eru allar helgar óbókaðar hjá mér í janúar, þannig að mér er alveg hjartanlega sama.

Kv. Halla

Nafnlaus sagði...

sælar skvísur og takk fyrir síðast, það var yndislegt að hitta ykkur í Hlíð.

Mér lýst best á 15.-17. janúar, þá á Ingvar fríhelgi.

Kveðja, Ósk

Nafnlaus sagði...

sælar dömur, get bara ekki hugsað svona langt fram í tímann.ég kemst öruggæega hvaða helgi sem er þar sem vinnuhelgarnar mínar samanstanda bara af 1 vakt núorðið þá ætti þetta nú allt að sleppa.
maður hlýtir að geta mætt og jafnvel gista, tími kominn á það.
kveðja, helga flosa.

Hugrún sagði...

Sælar stúlkur mínar

Mér sýnist fyrsta helgin vera málið. Ég kemst þá en verð sein á föstudeginum.

Kær kveðja,
Kristín Birna