Sveinsína er hávaxin, þéttvaxin, lávaxin, grannvaxin, með dökkt, rautt, ljóst, sítt, stutt hár og blá, grá, brún, græn augu. Hún er alvarleg, einföld, dul, saklaus, gáfuð, lífsreynd, uppátektarsöm, skörp, róleg, fjörug, opin. Hún er kona, systir, móðir, stelpa, eiginkona, dóttir, vinkona, frænka, kærasta, hún sjálf.
14 apríl 2008
Þessi er sko laufléttur
Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum"
pakkann.
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19
ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem
á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir
nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama
stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í
hvert skipti. Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur
misst 5 kg.
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar
hjá þeim
"misstu 10kg á 5 dögum" pakkann.
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og
kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er eingöngu klædd í
Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú
nærð mér, þá máttu eiga mig".
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í
fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra
daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á
fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10
kg.
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á
7 dögum" pakkann. "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta
prógrammið okkar"
"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg
ár".
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór,
helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á
þér MINN!"
Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.
kv. Halla
1 ummæli:
Eru til kvenmiðaðir megrunarkúrar í svipuðum dúr?
Skrifa ummæli