Sveinsína er hávaxin, þéttvaxin, lávaxin, grannvaxin, með dökkt, rautt, ljóst, sítt, stutt hár og blá, grá, brún, græn augu. Hún er alvarleg, einföld, dul, saklaus, gáfuð, lífsreynd, uppátektarsöm, skörp, róleg, fjörug, opin. Hún er kona, systir, móðir, stelpa, eiginkona, dóttir, vinkona, frænka, kærasta, hún sjálf.
10 október 2007
Svona gera menn í sveitinni...
Þessi gerðist í afskekktri sveit á Austfjörðum ekki alls fyrir löngu
Sighvatur, sem kominn var yfir miðjan aldur og Sóley, ung blómarós næstum
helmingi yngri en hann höfðu verið gift í nokkra mánuði og Sóley kvartaði
yfir því að fá aldrei fullnægingu með manni sínum. Í sveitinni var ekki
læknir en á næsta bæ bjó Sigurður dýralæknir og þau ákváðu að leita til
hans með vandræði sín. Sigurður dýralæknir sagðist engin svör kunna við
þessu en hann myndi þó eftir því að þegar hann var lítill drengur í þessari
sömu sveit, þá hefði belja á bænum átt í erfiðleikum með að fæða kálf og
foreldrar hans tekið til þess ráðs að veifa stóru handklæði framan í kúna
til þess að kæla hana niður og hjálpa henni að slaka á. Þetta hefði virkað
ágætlega.
Dýralæknirinn sagði þeim því að fá hann Pál á Brekku, ungan og hraustan
strák úr sveitinni til þess að koma og sveifla handklæði yfir þeim af
krafti á meðan þau hefðu samfarir. Það gæti hjálpað Sóleyju til þess að
kæla sig niður og slaka á.
Þau fara að ráðum dýralæknisins og fá því Pál á Brekku til þess að koma og
sveifa stóru handklæði yfir sér í hjónasænginni en eftir nokkrar tilraunir
þá koma þau aftur til Sigurðar og segja að þetta sé ekkert að virka.
Sigurður dýralæknir sest niður hugsi í smá stund og segir þeim þá að prófa
að skipta, láta Sighvat sveifla handklæðinu en stráksa fara í rúmið með
Sóleyju.
Hjónin fóru heim og prófuðu þetta. Strákurinn fer í rúmið með Sóleyju og
Sighvatur veifar handklæðinu af miklum krafti á meðan. Þá er eins og við
manninn mælt að Sóley fær hverja fullnæginguna á eftir annari með
tilheyrandi öskrum og stunum og eftir rúma tvo tíma þá veltir strákurinn
sér ofan af Sóleyju kófsveittur og úrvinda.
Sighvatur er ekki síður sveittur eftir hamaganginn við að sveifla
handklæðinu og horfir á strákinn hróðugur á svipinn og segir með áherslu:
"Svooona Páll, á að sveifla handklæðinu!".
2 ummæli:
Það var ég sem póstaði þetta, bara svo það sé á hreinu. Enginn hakkari hér á ferðinni.
ég fattað nú straxhver hefði sent þetta, sveitahúmorinn stendur alltaf fyrir sínu.kveðja, helga flosa.
Skrifa ummæli