20 mars 2006

Persónuleikar

Konur

Drykkur: Bjór
Persónuleiki: Óformleg, ekki þurftafrek; jarðbundin.
Nálgun: Skoraðu á hana í billjarð.

Drykkur: Hrærðir drykkir
Persónuleiki: Óáreiðanleg, síkvartandi, skapraunandi; alveg óþolandi.
Nálgun: Forðastu hana nema þú viljir vera skósveinninn hennar.

Drykkur: Blandaðir drykkir
Persónuleiki: Þroskuð, fáguð, þurftafrek, horfir í hvert smáatriði; veit upp á hár hvað hún vil.
Nálgun: Þú þarft ekki að nálgast hana. Ef hún hefur áhuga mun hún senda ÞÉR drykk.

Drykkur: Léttvín (Zinfandel hvítvín undanskilið)
Persónuleiki: Íhaldssöm og smekkleg; veraldarvön en fjörkálfur.
Nálgun: Segðu henni að þú elskir að ferðast og njóta rólegra kvöldstunda í góðra vina hópi.

Drykkur: Zinfandel hvítvín
Persónuleiki: Einföld; telur sig vera smekklega og veraldarvana en hefur í raun enga hugmynd hvað það er.
Nálgun: Láttu henni finnast hún klárari en hún í raun er... þetta ætti að vera einfalt skotmark.

Drykkur: Skot
Persónuleiki: Kann því vel að hanga með hóp stráka og er mikið fyrir að vera vel drukkin... og nakin!
Nálgun: Auðveldasta skotmarkið á staðnum. Þú hefur heppnina með þér. Gerðu ekkert nema bíða, en ekki reita hana til reiði!

Drykkur: Tequila Engin þörf á frekari skýringum - segir allt sem segja þarf...

SVO, smá viðauki um karlmennina...
- en aðförin að strákum er alltaf mjög einföld og skilvirk:

Innlendur bjór: Hann er fátækur og langar að ríða.

Innfluttur bjór: Hann kann að meta góðan bjór og langar að ríða.

Vín: Hann lifir í þeirri von að vínið gefi honum veraldarvant yfirbragð sem auki líkurnar á að fá á broddinn.

Viskí: Honum er skítsama um allt nema að fá á broddinn.

Tequila: Hann telur sig eiga sjens í tannlausu þjónustukonuna.

Zinfandel hvítvín: Hann er hommi!

1 ummæli:

Tilvera okkar.... sagði...

Hahahahahaha þetta er bara fyndið :)